Verkefni

Fótboltagras fyrir hámarksálag

Við höfum framleitt vallargras í áratugi. Mikil þróun hefur orðið í grasgerðum bæði gagnvart vetrarþoli, slitþoli, og lækkandi sláttuhæð.

Vallargrasið okkar er á íþróttavöllum víða um land, t.d. á nýja Valsvellinum, Leiknisvöllunum í Breiðholti, Hásteins-vellinum í Eyjum, Húsavíkurvöllunum, Þórsvellinum á Akureyri, og víðar.

Hér er hægt að hala niður bæklingi "Grasvellir - umhirða þeirra og ending" og um "Víti til að varast" um hvernig gras á ekki að nota á fótboltavelli. 

Gras fyrir blettinn heima

Við höfum þróað sérstakt gras fyrir heimagarða sem er lágvaxið, þétt, umhirðulétt og áferðarfallegt. Þetta gras er af svipaðri gerð og fótboltagrasið okkar en grösin eru fínlegri.

Í þróunarferlinu prófuðum við 40 tegundir af grösum, vaxarlag, áferð og vetrarþol.

Niðurstaðan varð Garðagrasið okkar sem er einstaklega slitsterk og létt í umhirðu. Við erum þeir einu sem framleiðum þessa gerð á Íslandi.

Þökugerðir í boði 

Við ræktum fjölmargar tegundir af torfi fyrir íslenskar aðstæður. Þær helstu eru vallargras, garðagras, Hvítsmáratorf, umhirðulétt gras, túnþökur, lyngþökur og úthagaþökur.

Rétt val á torfi skiptir sköpum því röng grastegund veldur vandræðum meðan hún lifir. Hér er ítarefni um túnþökur af gömlum túnum og hvað ber að varast við val á torfi. Einnig er hægt að hala niður bæklingi um Undirbúning fyrir þökulögn sem er mjög mikilvægur til að fá fram vel heppnaða grasflöt.