• Guðmundur, gsm: 894 3000
  • Sævar, gsm: 894 3005
  • LayerSlider encountered a problem while it tried to show your slider.Please make sure that you've used the right shortcode or method to insert the slider, and check if the corresponding slider exists and it wasn't deleted previously.


Nokkur atriði ber að hafa í huga við val á torfi og grastegundum. Ódýrustu fáanlegu túnþökurnar eru ekki endilega hagkvæmasta lausnin.
Nokkur atriði ber að hafa í huga við val á torfi og grastegundum. Ódýrustu fáanlegu túnþökurnar eru ekki endilega hagkvæmasta lausnin.
Verkefnin okkar hafa verið fjölbreytt í gegnum árin. Við höfum tyrft þúsundir af lóðum við heimahús, sumarbústaði, skóla, fyrirtæki og stofnanir. Þar að auki höfum við tyrft ótal fótboltavelli, golfvelli, hljóðmanir, og lagt torfþök. Á síðustu árum hefur svokölluðm umhverfis-verkefnum fjölgað frá því sem áður var.
Torf - í garðinum með Gurry
Hér er klippa úr sjónvarpsþættinum “Í garðinum með Gurrý” þar sem hún talar við Guðmund Jónsson á Borgareyrum um ræktun og vinnslu á torfi.
Torf - í garðinum með Gurry
Hér er klippa úr sjónvarpsþættinum “Í garðinum með Gurrý” þar sem hún talar við Guðmund Jónsson á Borgareyrum um ræktun og vinnslu á torfi.
Torf, hvert á land sem er
Við ræktum okkar torf á sandmoldar-ökrum sem hafa verið fjárlausir í áratugi og eru lausir við búfjársjúkdóma. Jarð-vegsgerðin er einstaklega heppileg fyrir grasrót því hún loftar hæfilega og þjappast lítið.

Við keyrum torfinu til viðskiptavina okkar um allt land. Við afhendum það yfirleitt á verkstað en fólk getur komið og sótt það á vinnusvæði okkar við Heimsenda í Kópavogi.
(sjá kort)

Allt okkar torf er framleitt með þéttum sverði og heilbrigðri rót fyrir mismun-andi þarfir viðskiptavina.

Við bjóðum einnig ýmsar gerðir af náttúrutorfi.
Fótboltagras fyrir hámarksálag
Við höfum framleitt vallargras í áratugi. Mikil þróun hefur orðið í grasgerðum bæði gagnvart vetrarþoli, slitþoli, og lækkandi sláttuhæð.

Vallargrasið okkar er á íþróttavöllum víða um land, t.d. á nýja Valsvellinum, Leiknisvöllunum í Breiðholti, Hásteins-vellinum í Eyjum, Húsavíkurvöllunum, Þórsvellinum á Akureyri, og víðar.

Hér er hægt að hala niður bæklingi "Grasvellir - umhirða þeirra og ending" og um "Víti til að varast" um hvernig gras á ekki að nota á fótboltavelli.  

Gras fyrir blettinn heima
Við höfum þróað sérstakt gras fyrir heimagarða sem er lágvaxið, þétt, umhirðulétt og áferðarfallegt. Þetta gras er af svipaðri gerð og fótboltagrasið okkar en grösin eru fínlegri.

Í þróunarferlinu prófuðum við 40 tegundir af grösum, vaxarlag, áferð og vetrarþol.

Niðurstaðan varð Garðagrasið okkar sem er einstaklega slitsterk og létt í umhirðu. Við erum þeir einu sem framleiðum þessa gerð á Íslandi.
Þökugerðir í boði 
Við ræktum fjölmargar tegundir af torfi fyrir íslenskar aðstæður. Þær helstu eru vallargras, garðagras, Hvítsmáratorf, umhirðulétt gras, túnþökur, lyngþökur og úthagaþökur.

Rétt val á torfi skiptir sköpum því röng grastegund veldur vandræðum meðan hún lifir. Hér er ítarefni um túnþökur af gömlum túnum og hvað ber að varast við val á torfi. Einnig er hægt að hala niður bæklingi um Undirbúning fyrir þökulögn sem er mjög mikilvægur til að fá fram vel heppnaða grasflöt.

VELDU UMHIRÐULÉTT GRAS Torf.is framleiðir umhirðulétt gras sem er sérstök blanda af grastegundum sem þurfa lítið af öllu; lítinn slátt, lítinn áburð og litla vökvun. Þetta eru þurrkþolnar smágerðar grastegundir sem sjá nánast um sig sjálfar og spara eigendum viðhaldkostnað og fyrirhöfn.