Ferskt torf í hæsta gæðaflokki hvert á land sem er
Við ræktum okkar torf á sandmoldar-ökrum sem hafa verið fjárlausir í áratugi og eru lausir við búfjársjúkdóma. Jarð-vegsgerðin er einstaklega heppileg fyrir grasrót því hún loftar hæfilega og þjappast lítið.
Við keyrum torfinu til viðskiptavina okkar um allt land. Við afhendum það yfirleitt á verkstað en fólk getur komið og sótt það á vinnusvæði okkar við Heimsenda í Kópavogi. (sjá kort)
Allt okkar torf er framleitt með þéttum sverði og heilbrigðri rót fyrir mismun-andi þarfir viðskiptavina.
Við bjóðum einnig ýmsar gerðir af náttúrutorfi.
TORF Í MEIRA EN 60 ÁR
Þekking sem skilar árangri
Torf hefur verið leiðandi í framleiðslu og lagningu torfs á Íslandi í áratugi. Upphafið má rekja til ársins 1959 þegar Jón Hafsteinn Guðmundsson og Birgir Matthíasson hófu að rista torf í Ástúni í Kópavogi, þar sem Ástúnshverfið stendur í dag. Reksturinn hefur verið í höndum sömu fjölskyldu alla tíð. Guðmundur Þ. Jónsson hefur rekið fyrirtækið síðan 1973 og í dag starfar þriðja kynslóðin, þeir Sævar Þór og Hrafn Guðmundssynir, við fyrirtækið.
Úrvals Ræktunarsvæði: Undanfarna áratugi hefur allt okkar torf verið ræktað á Borgareyrum í Rangárþingi eystra og jörðum þar í nágrenni. Við ræktum torfið á um 800 hekturum af úrvals landi sem hefur verið fjárlaust í áratugi.
Afhverju okkar torf? Jarðvegurinn á ræktunarsvæðum okkar er sandmold. Þessi jarðvegsgerð er einstaklega heppileg fyrir grasrætur þar sem hún er hæfilega loftrík, þjappast lítið og tryggir heilbrigða rót. Við leggjum metnað okkar í að bjóða upp á þéttan svörð sem hentar íslenskum aðstæðum og veðurfari.
Í garðinum með Gurrý
Hér er klippa úr sjónvarpsþættinum þar sem hún talar við Guðmund Jónsson á Borgareyrum um ræktun og vinnslu á torfi.
FAGLEG ÞJÓNUSTA – FRÁ TÚNINU OG ALLA LEIÐ HEIM
Heildarlausnir fyrir garða, svæði og náttúruverkefni
Túnþökusala –
Torf, Gras & Túnþökur
Verkefnin okkar hafa verið fjölbreytt í gegnum árin. Við höfum tyrft þúsundir af lóðum við heimahús, sumarbústaði, skóla, fyrirtæki og stofnanir.
Tyrfingar & Uppsetning
Þar að auki höfum við tyrft ótal fótboltavelli, golfvelli, hljóðmanir, og lagt torfþök. Við sjáum um undirbúning og lagningu torfs með fagmennsku og réttum næringarefnum.
Græn Svæði & Náttúra
Sérlausnir fyrir opin svæði, gönguleiðir og náttúrulega landgræðsluverkefni. Á síðustu árum hefur svokölluðm umhverfis-verkefnum fjölgað frá því sem áður var.
REYNSLUSÖGUR FRÁ ÁNÆGÐUM VIÐSKIPTAVINUM
torfið kom ferskt og útkoman varð fullkomin
Við vorum einstaklega ánægð með þjónustuna frá Torf. Torfið var ferskt, jafnt og kom á réttum tíma beint í garðinn. Það var auðvelt í meðförum og festist fljótt. Grasflötin varð þétt, falleg og hefur haldið sér mjög vel. Við fengum einnig góð ráð um undirbúning og viðhald sem gerði allan muninn. Mæli eindregið með þeim fyrir alla sem vilja gæði og fagmennsku.“
VÖRUÚRVAL
Veldu rétta tegund fyrir garðinn:
Torf er ekki bara torf. Við framleiðum mismunandi tegundir sem henta ólíkum þörfum.
Torf beint frá Býli
Við afhendum torfið ferskt og beint frá ræktuðum túnum á Suðurlandi – hratt, örugglega og alltaf í réttu magni og á réttum tíma.
Garðagras
Okkar vinsælasta vara fyrir heimagarða. Lágvaxið, þétt og dökkgrænt gras sem er mjúkt
viðkomu og þægilegt að ganga á. Blandað úr vallarsveifgrasi og túnvingli, þróað til að vera
slitsterkt og umhirðulétt.
Hvítsmáratorf
Þurrkþolið torf sem ilmar vel á sumrin. Tilvalið í brekkur og sumarhúsalóðir. Myndar blómaengi sem má slá eða láta vaxa villt fyrir náttúrulegt yfirbragð.
Úthagatorf
Skorið af uppræktuðum úthaga með íslenskum grösum og jurtum. Þarf engan áburð og hentar
fullkomlega til að skapa náttúrulegt útlit við mannvirki eða sumarbústaði. Frábært á torfþök.
Lyngþökur
Líkt úthagatorfi en með snauðara gróðursamfélagi þar sem krækilyng, beitilyng og mosi eru
áberandi. Þola engan ágang og henta best á malarborinn jarðveg til skrauts.
Vallartorf
Mjög slitsterkt gras hannað fyrir leiksvæði, íþróttavelli og opin svæði þar sem mikið mæðir á
grasinu.
SPURT & SVARAÐ
Algengar spurningar
Hvað þarf ég mikið torf?
Mældu svæðið og bættu við um 5% fyrir afskurð og frágang.
Af hverju skiptir uppruni torfsins máli?
Ódýrari túnþökur eru oft skornar af gömlum túnum með grófum grastegundum og illgresi. Slíkt torf verður oft flekkótt og viðhaldskræft. Okkar torf er sérræktað fyrir þéttan, fínlegan og slitsterkan svörð.
Hvenær er best að leggja torf?
Best er að leggja torf á vorin eða snemmsumars. Hægt er að leggja fram í október, en þá rótar það sig aðallega næsta vor.
Athugið:
Torf er ferskvara og þarf að leggja samdægurs í heitu veðri.
Hvað með torfþök?
Úthagatorf er besti kosturinn á torfþök. Það einangrar vel, dregur í sig regnvatn og þarf engan slátt. Rétt lagt torfþak endist áratugum saman.
Hvernig er vökvun háttað eftir lagningu?
Vökva þarf nýlagt torf ríkulega í 2–3 vikur, í 30–60 mínútur annan hvern dag.
Hvernig á ég að undirbúa jarðveginn?
Sjá ítarlega grein um gróðurlag hér að ofan. Í stuttu máli: Það þarf að jafna svæðið, tryggja vatnsrennsli frá byggingum og fjarlægja illgresi. Síðan þarf að vinna jarðveginn niður á a.m.k. 30 cm dýpt, bæta hann með sandi og lífrænum áburði og stilla sýrustig með kalki.
Hvað þarf að hafa í huga við lagningu á grasþökum?
Best er að leggja frá föstum kanti og víxla endum á hverri röð. Þökurnar mega hvorki skarast né vera of þétt. Áður en lagt er þarf að sáldra fiskimjöli eða hænsnaskít yfir svæðið til að auka rótfestu.
Hvaða tegund torfs hentar best fyrir garð við heimili?
Garðagrasið hentar vel fyrir heimilisgarða. Það er mjúkt viðkomu, dökkgrænt og samanstendur aðallega af vallarsveifgrasi og túnvingli. Það gefur fallega áferð, þarfnast miðlungs viðhalds og er þægilegt að ganga á.
Er eitthvað sem ber að varast við kaup á túnþökum?
Já – varast skal túnþökur skornar af gömlum fóðurtúnum með vallarfoxgrasi. Slíkar þökur hafa mikinn viðhaldskostnað og þróa oft illgresi og flekkótt yfirborð. Sérræktuð tún með túnvingli og vallarsveifgrasi eru mun áreiðanlegri.
Hvenær á að leggja torf og hvernig er vökvuðum háttað?
Best er að leggja torf á vorin eða snemmsumars. Eftir lagningu skal vökva torfið vel svo það festist og rótist fljótt. Nýr grassvörður þarf mikinn raka fyrstu dagana og reglulegt eftirlit næstu vikur.
Hvernig er viðhald eftir að torf hefur verið lagt?
Eftir að torfið hefur fest rætur skal slá grasið fyrst þegar það nær 10 cm hæð. Þá er notað hæsta stilling á sláttuvél. Áburður skal gefinn í litlum skömmtum reglulega og hætta slætti í september.
FRÓÐLEIKUR
Grasavísar: Fróðleikur, ráð og innblástur
Gróðurlagið – undirstaða fallegs garðs
Gróðurlag og undirbúningur: Þegar kemur að því að rækta fallega og endingargóða grasflöt er undirbúningurinn mikilvægasti þátturinn. Ef undirlagið er ekki rétt unnið dugir besta torf í heimi ekki til. Hvaða jarðveg á að nota? Ef skipt er um gróðurlag mælum við með...
Torf er fersk vara – hvað þarf að hafa í huga við afhendingu og lagningu?
Torf er lifandi vara og viðkvæm fyrir hita. Á heitustu tímum sumarsins, sérstaklega í júní, júlí og ágúst, þarf að leggja torf samdægurs eða eigi síðar en daginn eftir afhendingu. Ef hitinn í torfinu fer yfir 30°C byrjar það fljótt að skemmast. Í sumum tilvikum er...
Fróðleikur um torfþök (græn þök) á Íslandi
Torfþök, einnig kölluð græn þök, hafa sannað sig sem einn besti þakklæðningarkostur sem völ er á við íslenskar aðstæður. Af öllum torftegundum hefur úthagatorf reynst langbest á húsþök hérlendis. Úthagatorf verður aldrei of loðið og best er að láta það vaxa óslegið....
Svona Gerum Við:
Ráð & ábendingar
Við höfum sett saman hagnýtan bækling fyrir þig sem gefur skýr ráð og ábendingar um hvernig á að vinna með gras og torf á íslenskan hátt. Hvort sem þú ert að undirbúa garðflöt, leggja þök eða velja réttu tegundina fyrir lóðina þína – þessi handbók leiðir þig í gegnum það skref fyrir skref.










