Gróðurlag og undirbúningur:
Þegar kemur að því að rækta fallega og endingargóða grasflöt er undirbúningurinn mikilvægasti þátturinn. Ef undirlagið er ekki rétt unnið dugir besta torf í heimi ekki til.
Hvaða jarðveg á að nota?
Ef skipt er um gróðurlag mælum við með hreinni mold eða sandblandaðri mold. Á íþrótta- og golfvöllum er nær eingöngu notaður hreinn, fínn fjörusandur vegna frábærra eiginleika hans.
Fjörusandur nýtist einnig vel í heimagörðum. Með því að blanda honum í moldina verður jarðvegurinn loftríkari og vel framræstur, sem kemur í veg fyrir of mikla þjöppun.
Dýpt og frágangur :
Gróðurlagið þarf að vera 20–30 cm á þykkt.
Grjóthreinsun:
Fjarlægja þarf grjót niður á að minnsta kosti 30 cm dýpi til að koma í veg fyrir frostlyftingu.
Jöfnun:
Yfirborðið á að vera slétt og vel þjappað, án þess þó að nota of þunga valtara sem loka jarðvegnum.
