Torf er fersk vara – hvað þarf að hafa í huga við afhendingu og lagningu?

Torf er lifandi vara og viðkvæm fyrir hita. Á heitustu tímum sumarsins, sérstaklega í júní, júlí og ágúst, þarf að leggja torf samdægurs eða eigi síðar en daginn eftir afhendingu.

Ef hitinn í torfinu fer yfir 30°C byrjar það fljótt að skemmast. Í sumum tilvikum er hægt að bjarga slíku torfi með mikilli og daglegri vökvun, en ef það er ekki gert getur grasið drepist og torfið orðið brúnt. Þó grær slíkt torf oft upp aftur á einu til tveim sumrum, en best er að forðast þetta alfarið.

Á öðrum árstímum þolir torfið lengri bið. Til dæmis má leggja torf sem skorið er seint í október allt fram á vor, að því gefnu að hitastig í rúllunum sé undir 30°C.