Torfþök, einnig kölluð græn þök, hafa sannað sig sem einn besti þakklæðningarkostur sem völ er á við íslenskar aðstæður. Af öllum torftegundum hefur úthagatorf reynst langbest á húsþök hérlendis.
Úthagatorf verður aldrei of loðið og best er að láta það vaxa óslegið. Það er sjálfbært á þaki og þarfnast hvorki áburðar né reglulegrar umhirðu. Gróðurþekjan dregur í sig svifryk, sem skiptir sérstaklega miklu máli í þéttbýli, og einangrar þakið mjög vel. Vindkæling minnkar verulega og óveðurshljóð hverfa nánast alveg.
Rannsóknir og reynsla sýna að allt að 90% af úrkomu sem fellur á torfþak stoppar í gróðurþekjunni og gufar síðan upp. Vatnið fer því ekki beint í niðurföll heldur jafnast álagið út, sem léttir á fráveitukerfum.
Algeng spurning er hversu lengi torfþök endist. Svarið er einfalt: rétt lagt úthagaþak endist að jafnaði jafn lengi og byggingin sjálf. Óvissuþátturinn er ekki torfið, heldur frágangur undirlagsefna og dúksins undir torfinu.
