Að leggja torf er einfalt í orðum, en undirvinnan ræður úrslitum. Ef undirbúningur jarðvegs er ekki rétt framkvæmdur er ekki hægt að laga það síðar.
Fyrsta skrefið er að meta halla svæðisins. Vatn á alltaf að renna frá byggingum og stéttum. Ef vatn stendur á svæðinu þarf að huga að drenun, annars nær grasið ekki rótum og torfið skemmist fljótt.
Næst þarf að losa jarðveginn og grjóthreinsa hann niður á að minnsta kosti 30 cm dýpi. Sé þetta ekki gert getur frostlyfting ýtt steinum upp í gegnum grasið og myndað ójöfnur og þúfur.
Í jarðveginn er mælt með að blanda kjötmjöli, um 25 kg á hverja 100 fermetra. Kjötmjöl eykur næringargildi jarðvegsins, styrkir lífríkið og tryggir betri og hraðari rótfestu. Mikilvægt er að raka það vel ofan í jarðveginn áður en torfið er lagt til að forðast að rætur grassins brenni.
Að lokum þarf að jafna yfirborðið vandlega og troða moldina vel niður. Þungir valtarar henta illa þar sem þeir þjappa jarðveginum of mikið og loka honum.
